Liverpool og Man Utd vilja Raum - Chelsea og Arsenal eltast við Hall - Verbruggen lítur í kringum sig
   þri 14. apríl 2026 17:00
Kári Snorrason
Mikil breidd KA - Svona geta þeir stillt upp með Oliver Heiðars
Oliver Heiðarsson er á leið í KA.
Oliver Heiðarsson er á leið í KA.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Frá leiknum á sunnudag.
Frá leiknum á sunnudag.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Hallgrímur Jónasson.
Hallgrímur Jónasson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Danijel Dejan Djuric.
Danijel Dejan Djuric.
Mynd: KA
Þær sögusagnir um að Oliver Heiðarsson sé að ganga í raðir KA virðast vera raungerast. Að því tilefni stillti undirritaður upp saman mögulegu byrjunarliði KA með Oliver innanborðs.

Það er ár mikilla breytinga hjá KA en liðið missti stóra pósta í fyrirliðanum Ívar Erni Árnassyni, Birni Snæ Ingassyni, Bjarna Aðalsteinssyni og Ingimar Stöle fyrir tímabil.

Þeir hafa þó sótt Danijel Dejan Djuric, Jeppe Pedersen, Diego Montiel og Samuel Kroon svo einhverjir séu nefndir. Þá hefur Sveinn Margeir Hauksson snúið aftur norður en hann kom á láni frá Víkingum.



Króatíufararnir Oliver og Danijel geta deilt ábyrgðinni í sóknarleik liðsins sem hefur að mestu hvílt á herðum Hallgríms Mars Steingrímssonar undanfarin ár. Þá er spurning um standið á Sveini Margeiri sem hefur verið frá vegna meiðsla í rúmt ár.

Ef litið er á breiddina fram á við er hún töluverð. Leikmenn á borð við Diego Montiel, Jóan Símun Edmundsson, Ásgeir Sigurgeirsson, Jakob Héðinn Róbertsson, Jakob Snær Árnason og Samuel Kroon (sem getur einnig leyst stöðu bakvarðar) gera allir atlögu að byrjunarliðinu.

Þá gæti verið að Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, myndi spila Oliver sem fremsta manni. Oliver þarf í hið minnsta ekki að leita langt ef hann þarf góð framherjaráð því faðir hans er Heiðar Helguson. Danijel Dejan Djuric myndi þá eflaust færast neðar á völlinn eða út á væng.

Komnir
Danijel Dejan Djuric frá Króatíu
Diego Montiel frá Vestra
Jeppe Pedersen frá Vestra
Samuel Kroon frá Svíþjóð
Sveinn Margeir Hauksson frá Víkingi á láni
Jakob Héðinn Róbertsson frá Völsungi
Breki Hólm Baldursson frá ÍR (var á láni)
Ívar Arnbro Þórhallsson frá Völsungi (var á láni)
Kári Gautason frá HK (var á láni)
Ívar Logi Jóhannesson frá Hetti
Þórhallur Ási Aðalsteinsson frá Hetti
Dagbjartur Búi Davíðsson frá Þór (var á láni)
Bjarki Fannar Helgason frá Hetti/Hugin (var á láni)
Árni Veigar Árnason frá Hetti/Hugin (var á láni)

Farnir
Ívar Örn Árnason í Breiðablik
Birnir Snær Ingason í Stjörnuna
Bjarni Aðalsteinsson til Danmerkur
Marcel Römer til Danmerkur
Ingimar Torbjörnsson Stöle til Vals
Jonathan Rasheed til Gautaborgar
Viðar Örn Kjartansson á Selfoss
Andri Fannar Stefánsson í Magna
Dagur Ingi Valsson í Keflavík
William Tonning til Nýja Sjálands

Slapp
banner
banner