14.05.08 - 13:10
Magnús Már Einarsson
Matej, Gestur og Tómas í Aftureldingu (Staðfest)

Gestur Ingi Harðarson er kominn aftur til Aftureldingar en hér er hann í leik með liðinu í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Afturelding hefur fengið þrjá nýja leikmenn til liðs við sig, þá Gest Inga Harðarson, Matej Grobovsek og Tómas Þorsteinsson.
Matej er slóvenskur miðjumaður sem hefur æft með liðinu að undanförnu og leikið æfingaleiki. Þessi 25 ára gamli leikmaður hefur undanfarin tvö tímabil leikið með Víkingi Ólafsvík.
Gestur Ingi er örfættur og getur leikið á kantinum og í bakverði. Gestur kemur til Aftureldingar á láni frá Fram en hann þekkir til í Mosfellsbænum eftir að hafa verið einnig á láni þar í fyrra.
Tómas er örfættur líkt og Gestur og getur leikið bæði í bakverði og á kanti. Tómas verður tvítugur í ár en hann er uppalinn í Fylki og kemur til Aftureldingar á láni frá Árbæjarliðinu.
Allir leikmennirnir hafa fengið leikheimild með Aftureldingu og geta því leikið með liðinu gegn ÍH í fyrstu umferð annarar deildar á föstudaginn.