14.05.08 - 14:45
Magnús Már Einarsson
Arnar Þór Úlfarsson í Selfoss (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur
Selfyssingar hafa fengið varnarmanninn Arnar Þór Úlfarsson á láni frá Fylki út tímabilið en þetta staðfesti Tómas Þóroddsson í meistaraflokksráði félagsins við Fótbolta.net í dag.
Arnar Þór er uppalinn Fylkismaður og hefur leikið með liðinu alla tíð fyrir utan sumarið 2001 þegar hann lék með Aftureldingu á láni.
Arnar Þór er 28 ára gamall en í fyrra kom hann við sögu í þremur leikjum í Landsbankadeildinni hjá Fylki.
,,Þetta er mjög mikill styrkur. Þetta er náttúrulega reynslubolti og akkúrat leikmaðurinn sem okkur vantar, reynslumikill varnarmaður," sagði Tómas við Fótbolta.net í dag.
Selfyssingar eru að nýju í fyrstu deild í ár eftir fimmtán ára fjarveru en liðið byrjaði mótið af krafti í fyrradag og sigraði Víking Reykjavík 3-2 á útivelli.
Á sunnudag taka Selfyssingar síðan á móti Leikni Reykjavík en þar ætti Arnar Þór að geta leikið sinn fyrsta leik fyrir liðið.