14.05.08 - 17:15
Magnús Már Einarsson
ÍH að fá sjö nýja leikmenn til liðs við sig (Staðfest)

Mikel Herrero Idigoras er á leið í ÍH.

Mynd: Fótbolti.net - AndriJan.net

Mikael Nikulásson þjálfari ÍH.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Mikel Herrero Idigoras er á leið í ÍH.

Mynd: Fótbolti.net - AndriJan.net
ÍH úr annarri deild er að styrkja sig fyrir átökin í annarri deildinni en tveir leikmenn hafa fengið leikheimild með liðinu í dag og fimm nýjir leikmenn ættu að fá leikheimild áður en félagaskiptaglugginn lokar á morgun.
ÍH hefur fengið Nik Anthony Chamberlain og Mikel Herrero Idigoras en þeir léku með Álftanesi í fyrra. Nik er miðjumaður en hinn spænski Mikel, sem lék með Njarðvík 2006, er kant og sóknarmaður. Gamli refurinn Ómar Bendtsen er einnig búinn að skipta í ÍH úr Álftanesi.
Sóknarmaðurinn Sævar Eyjólfsson er líka á leið í ÍH en síðast lék hann með Njarðvík. Áður var Sævar meðal annars á mála hjá ÍBV, Þrótti og Haukum.
Tveir ungir varnarmenn úr Haukum, Guðmundur Pálsson og Viktor Ari Viktorsson eru einnig á leið til ÍH og þá hefur bandarískur leikmaður að nafni Bart æft með liðinu en hann á ennþá eftir að fá leikheimild.
,,Ég er náttúrulega búinn að vita í langan tíma með útlendingana og Ómar og við gerðum samstarfssamning við Hauka síðastliðið haust þannig að það var alveg eins líklegt að við fengjum einhverja frá Haukum og það koma allavega þessir tveir," sagði Mikael Nikulásson þjálfari ÍH við Fótbolta.net í dag.
,,Sævar er síðan óvæntur bónus, það er óvíst hvað hann spilar mikið með, hann hefur ekkert verið að æfa og ætlar að koma sér í gang. Við erum búnir að spila á litlum hóp í vetur, verið með fáa leikmenn í deildabikarnum af því að ég vissi af þessu, að ég væri að fara að styrkja liðið rétt fyrir mót. Það er kannski ekki besti undirbúningurinn en svona er þetta," bætti Mikael við.
ÍH sigraði KFR 4-0 í gær í síðasta æfingaleik sínum fyrir mót en liðið tekur á móti Aftureldingu í fyrstu umferðinni í annarri deild á föstudagskvöld.