Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 14. maí 2019 18:12
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið WBA og Aston Villa: Smith gerir tvöfalda skiptingu
Mynd: Getty Images
Seinni undanúrslitaleikur West Bromwich Albion og Aston Villa fer að hefjast og hafa byrjunarliðin verið tilkynnt.

Aston Villa vann fyrri leikinn 2-1 á heimavelli og gerði Dwight Gayle eina mark West Brom. Gayle fékk tvö gul spjöld í leiknum og er þess vegna í leikbanni í dag. Miðjumaðurinn Jacob Murphy byrjar inná í hans stað og er það eina breytingin sem James Shan gerir á sínu liði.

Dean Smith gerir tvær breytingar á byrjunarliði Aston Villa. Andre Green og Conor Hourihane koma inn fyrir Glenn Whelan og Albert Adomah. Birkir Bjarnason er hvergi sjáanlegur.

Smith gerði nákvæmlega þessa tvöföldu skiptingu þegar staðan var 0-1 fyrir West Brom í fyrri leiknum. Hourihane jafnaði átta mínútum síðar.

Sigurvegari viðureignarinnar mætir annað hvort Leeds United eða Derby County í úrslitaleik umspilsins.

West Brom: Johnstone, Holgate, Dawson, Hegazi, Bartley, Gibbs, Johansen, Brunt, Phillips, Murphy, Rodriguez
Varamenn: Bond, Townsend, Adarabioyo, Morrison, Harper, Leko, Montero

Aston Villa: Steer, Elmohamady, Tuanzebe, Mings, Taylor, Hourihane, McGinn, Grealish, Green, El Ghazi, Abraham
Varamenn: Kalinic, Hause, Jedinak, Whelan, Adomah, Kodija, Davis
Athugasemdir
banner
banner
banner