07.11.26 - 09:55
Brynjar Ingi Erluson
Segir að ungir leikmenn eigi að eyða samfélagsmiðlum

Roberto De Zerbi

Mynd: EPA

Roberto De Zerbi

Mynd: EPA
Roberto De Zerbi, stjóri Tottenham, segir að ungir leikmenn ættu að eyða samfélagsmiðlum og einbeita sér alfarið að fótboltaferlinum.
De Zerbi telur að samfélagsmiðlar trufli unga leikmenn allt of mikið og hafi bein áhrif á frammistöðu þeirra inni á vellinum.
Hann segir erfitt að halda ungum leikmönnum við efnið og telur að þeir ættu einfaldlega að eyða samfélagsmiðlum til að geta einbeitt sér betur að fótboltanum.
„Ég tel að ungir leikmenn ættu að eyða öllum samfélagsmiðlum. Þeir verða að einbeita sér að því að bæta sig, læra af liðsfélögum sínum og fylgja fordæmi eldri leikmanna sem hafa meiri reynslu og náð lengra á ferlinum. Þeir verða að leggja hart að sér.“
„Ef þú fylgist með samfélagsmiðlum ertu besti leikmaður heims einn daginn, en daginn eftir kanntu ekki að spila fótbolta. Þú þarft að vera mjög sterkur andlega og heppinn að eiga góða fjölskyldu sem styður við bakið á þér, því annars geturðu auðveldlega misst sjálfan þig á leiðinni.“
„Ég elska að vinna með þessum ungu leikmönnum, bæði þeim sem eru þegar orðnir toppleikmenn og þeim sem hafa möguleika á að verða það í framtíðinni,“ sagði De Zerbi.