Fotbolti.net
07.11.26 - 10:00
Ívan Guðjón Baldursson

Emery staðfesti samningsviðræður

Emery staðfesti samningsviðræður
Canon

Mynd: EPA

Unai Emery þjálfari Aston Villa staðfestir að viðræður um nýjan samning við félagið séu á góðri leið.
Emery fær nýjan samning og enn frekari völd
TENGT EFNI

Emery fær nýjan samning og enn frekari völd

Emery hefur gert frábæra hluti á fjórum árum við stjórnvölinn. Núverandi samningur hans við félagið rennur út sumarið 2029 en þjálfarinn fær endurbættan samning í ljósi áhuga ýmissa stórvelda á þjónustu hans.

Í nýjum samningi felast aukin völd fyrir Emery og svaraði þjálfarinn spurningum á fréttamannafundi í gær, fyrir leik Aston Villa gegn Manchester United sem hefst á morgun klukkan 16:30.

„Ég átti mjög góðan fund með Nassef Sawiris (eiganda og forseta félagsins) og við höldum viðræðum áfram í næstu viku. Mitt markmið er að halda áfram að styrkja Aston Villa sem fótboltalið og fótboltafélag og stjórnin er með mér í því," sagði Emery.

„Þetta er risastór áskorun og við erum á réttri leið. Stjórnin stækkaði leikvanginn og við erum með sífellt meiri pening bæði til að kaupa leikmenn og bjóða þeim samkeppnishæf laun. Við erum að stækka ímynd félagsins á heimsvísu með góðum frammistöðum á Englandi og í Evrópu.

„Markmiðið er að halda áfram að kaupa unga og efnilega leikmenn, hjálpa þeim að þróa sinn leik og selja þá ef þeir vilja fara þegar nægilega hátt tilboð berst. Þetta er ferlið sem við þurfum að ganga í gegnum til að stækka sem félag."
Emery staðfesti samningsviðræður
Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Everton10+216
6Liverpool9+215
7Brentford9+714
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry10-99
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.