14.06.06 - 18:00
Hafliði Breiðfjörð
Eiður Smári til Barcelona (Staðfest)

Eiður skrifar undir samninginn en faðir hans og umboðsmaður, Arnór Guðjohnsen er í baksýn.

Mynd: FCBarcelona.com

Eiður Smári Guðjohnsen er genginn í raðir Evrópumeistara Barcelona en þetta var staðfest á blaðamannafundi sem nú stendur yfir hjá félaginu. Hann geir fjögurra ára samning við félagið og er fyrstu kaup sumarsins, kemur á 8,2 milljónir punda frá Chelsea.
Í nýjum samningi hans við félagið er klásúla um að hann fái að losna frá félaginu ef boðnar verða 60 milljónir Evra. Hann fær treyjunúmerið 7 hjá Barcelona sem Henrik Larsson lék í á síðustu leiktíð en sá sænski er farinn til heimalandsins þar sem hann mun leika með Helsingborg.
Eiður Skrifaði undir samninginn um 16:45 í dag sem gildir til 30. júní árið 2010. Hann hafði komið til Barcelona í gærkvöld og snemma í morgun mætti hann í læknisskoðun á sjúkrahúsi Barcelona þar sem hann fór í ýmiskonar prófanir.
Á Nou Camp héldu svo áfram prófanir þar sem Dr. Gil Stems læknir félagsins staðfesti gott form Íslendingsins sem hefur ekki lent í slæmum meiðslum síðan árið 1996 þegar hann meiddist alvarlega og náði sér ekki fyrr en 1998.
Sjá einnig:
ÍR og Valur hagnast ekki á sölu Eiðs Smára
Öll helstu tilþrif Eiðs Smára á myndbandi
Eiður Smári verður númer 7 hjá Barcelona
Eiður Smári stenst læknisskoðun hjá Barcelona
Eiður Smári annar Íslendingurinn hjá Barcelona
Puyol spenntur fyrir Eiði Smára
Eiður Smári skrifar undir hjá Barcelona undir hádegi
Arnór á leið til Spánar að ræða við Barcelona