14.06.06 - 18:50
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Scott Ramsey í Víði (Staðfest)

Ramsay er hann varð bikarmeistari með Keflavík árið 2004

Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson

Ramsay er hann varð bikarmeistari með Keflavík árið 2004

Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson
Scott Ramsay gekk í dag til liðs við Víði í Garði frá Grindavík en hann hefur ekki ennþá spilað leik fyrir þá í sumar þó að hann spilað með þeim á undirbúningstímabilinu.
Ramsay hefur einnig spilað fyrir Keflavík og Reyni í Sandgerði og þykir einstaklega góður með boltann og mun hann verða mikill liðstyrkur fyrir Víði ef hann nær sér á strik.
Víðir er í A-riðli í 3. deild og eru þar í öðru sæti eftir þrjá leiki með tvo sigra og eitt tap. Scotty, eins og hann er kallaður, fékk leikheimild í dag og getur því verið með liðinu er það mætir Gróttu á Gróttuvelli í kvöld.