14.06.07 - 16:30
Magnús Már Einarsson
Tal Ben Haim til Chelsea (Staðfest)

Ben Haim tæklar Cristiano Ronaldo.

Mynd: Getty Images

Ben Haim tæklar Cristiano Ronaldo.

Mynd: Getty Images
Varnarmaðurinn Tal Ben Haim hefur gert fjögurra ára samning við Chelsea en samningur hans við Bolton Wanderers var að renna út.
Sam Allardyce nýráðinn stjóri Newcastle hafði einnig áhuga á þessum 25 ára Ísaela en hann ákvað að fara frekar til Chelsea.
Chelsea reyndi að kaupa Ben Haim í janúar en félagið náði ekki samkomulagi við Bolton.
Ben Haim er þriðji leikmaðurinn sem að Chelsea fær í sumar en liðið hafði áður fengið Claudio Pizarro frá Bayern Munchen og Steve Sidwell frá Reading.

Heimild: BBC