Fotbolti.net
14.06.08 - 08:26
Brynjar Ingi Erluson
Ítalska deildin

Barzagli og Zaccardo til Wolfsburg (Staðfest)

Barzagli og Zaccardo hér vinstra megin í leik

Barzagli og Zaccardo hér vinstra megin í leik

Canon

Mynd: Getty Images

Þýska úrvalsdeildarfélagið Vfl Wolfsburg hefur fest kaup á ítölsku leikmönnunum Andrea Barzagli og Cristian Zaccardo, en báðir léku þeir hjá Palermo í Seríu A.
Fram kemur á heimasíðu Palermo að liðið hafi selt báða leikmennina til Wolfsburg, en þó er óvíst hver lengd samninga og kaupverð muni nema um. Leikinn verður vináttuleikur sem partur af kaupunum.

Barzagli, sem er 27 ára gamall að upplagi varnarmaður kom til Palermo árið 2004 og hafði verið lykilleikmaður liðsins síðan þá. Þessa dagana leikur hann með ítalska landsliðinu á Evrópumótinu, en hann hefur verið mikið gagnrýndur fyrir slaka frammistöðu á mótinu.

Zaccardo er 26 ára hægri bakvörður og var einnig lykilmaður Sikileyjarliðsins, en hann hefur ekki leikið með ítalska landsliðinu síðan árið 2006, eða síðan Roberto Donadoni tók við liðinu.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.