Fotbolti.net
14.06.20 - 21:53
Helgi Fannar Sigurðsson

Jakob: Á stað þar sem við getum unnið hverja einustu viðureign

Auglýsing
Jakob Leó ásamt tveimur af nýjum leikmönnum Hauka á dögunum

Jakob Leó ásamt tveimur af nýjum leikmönnum Hauka á dögunum

Canon

Mynd: Haukar

Mjólkurbikarinn
„Við hefðum auðvitað vilja sleppa við þessa framlengingu en við kláruðum þetta sem betur fer," sagði Jakob Leó Bjarnason, þjálfari Hauka eftir að hans lið sló Víking úr leik í 2.umferð Mjólkurbikars kvenna í dag.

Gestirnir úr Víkinni komust tvívegis yfir í dag en Haukar náðu að jafna í bæði skiptin og urðu lokatölur 2-2 eftir venjulegan leiktíma. Það þurfti því að grípa til framlengingar. Í henni var ekkert skorað og var því farið í vítaspyrnukeppni. Þar höfðu Haukar betur.
„Þetta var virkilega góður leikur. Víkingarnir mættu okkur vel, börðust vel og lögðu sig alla fram. Þær eiga hrós fyrir það. Þær gáfu okkur vítakeppni, þetta fór ansi langt."

Haukar drógust gegn Fjarðabyggð/Hetti/Leikni í næstu umferð. Jakobi líst vel á þá viðureign.

„Ég er aðallega ánægður með að fá heimaleik. Það er gaman að fá lið sem við höfum ekki mætt áður hingað til okkar."

Þegar Jakob var spurður út í markmið Hauka í deildinni í ár svaraði því hann sem svo að Haukar færu í allar viðureignir til að sigra.

„Við ætlum okkur sigur í hverri einustu viðureign og það þýðir það náttúrulega að í lok tímabils verðum við í efstu tveimur sætunum. Við erum búin að vinna með þetta lið í tvö ár núna og teljum okkur vera komin á þann stað að geta unnið hverja einustu viðureign."

Viðtalið í heild má sjá hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.