Maður dagsins á HM - Blómstrar með landi en ekki liði

Azzedine Ounahi umkringdur liðsfélögum sínum.

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mohamed Ouahbi, landsliðsþjálfari Marokkó, ræðir við Ounahi.

Miðjumaðurinn Azzedine Ounahi skoraði tvö mörk í 3-0 sigri Marokkó gegn Kanada og hjálpaði liðinu að komast í 8-liða úrslit, þar sem það etur kappi við Frakkland í kvöld.
Ounahi hefur ekki náð þeim hæðum sem vonast var eftir í félagsliðaboltanum en þegar hann klæðir sig í marokkósku treyjuna þá sýnir hann sínar bestu hliðar og hæfileikar hans njóta sín.
Ounahi vakti mikla athygli á HM fyrir fjórum árum, 2022, og fékk meðal annars hrós frá Luis Enrique eftir að hafa spilað frábærlega gegn Spánverjum.
„Hvaðan kom þessi strákur? Hann hætti ekki að hlaupa," sagði Enrique, þáverandi þjálfari Spánverja, eftir leik. Þá var Ounahi aðeins 22 ára gamall og hafði spilað árinu áður í frönsku C-deildinni.
Eftir frammistöðu hans 2022 var nafn hans reglulega í slúðurpökkum og hann var meðal annars orðaður við Barcelona. Á endanum yfirgaf hann Angers og hélt til Marseille.

Öflugur auglýsingagluggi
Ounahi kom af bekknum og skoraði í sínum fyrsta leik með Marseille. En þrátt fyrir lofandi byrjun náði hann ekki að festa sæti sitt í liðinu og sumarið 2024 var búið að lána hann til Panathinaikos.
Eftir tímabil í Grikklandi gekk hann í raðir spænska félagsins Girona. Þrátt fyrir að liðið hafi fallið þá fann Ounahi sig vel og var einn besti leikmaður liðsins. Það er hægt að segja að upprisa hans hafi svo verið stimpluð með frammistöðunni gegn Kanada þar sem hann var valinn maður leiksins.
Líkt og fyrir fjórum árum er líklegt að Ounahi verði orðaður við stærri félög, sérstaklega eftir fall Girona og þar sem riftunarákvæði er í samningi hans. Spurningin er sú hvort hugsanleg skipti myndu þá virka betur fyrir hann en þau gerðu fyrir fjórum árum?
Fullmótaðri leikmaður
Ounahi, nú 26 ára gamall, er pottþétt betur tilbúinn í þetta sinn. Hann er þroskaðri, reyndari og fullmótaðri miðjumaður. Leikstíll Marokkó hentar hæfileikum hans vel en liðið er orðið sóknarsinnaðra og skemmtilegra áhorfs en það var.
„Við höfum breytt leikskipulaginu og hann spilar ofar á vellinum. Hann spilar meira á síðasta þriðjungi. Hann fær fleiri sendingamöguleika og finnur sig oftar í vítateignum," segir Mohamed Ouahbi, landsliðsþjálfari Marokkó, um Ounahi.
Það verður spennandi að fylgjast með honum gegn Frakklandi í kvöld.
Orkusalan og Fótbolti.net velja mann dagsins á HM á hverjum degi á meðan mótið er í gangi í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada.