Yamal vill fá Julián Alvarez til Barcelona

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Spánn spilar við Belgíu í 8-liða úrslitum heimsmeistaramótsins annað kvöld og er táningurinn Lamine Yamal spenntur fyrir leiknum.
Yamal svaraði spurningum í nótt og ræddi meðal annars um Thibaut Courtois og Julián Alvarez.
„Ég finn ekki fyrir pressu, ég finn fyrir ábyrgð. Það er gott þegar fólk treystir á mann og býst við að maður geri vel. Mér líkar vel við þessa tilfinningu, ég hef ekkert á móti því sem fólk kallar pressu. Ég tek gagnrýni vel og svara henni á vellinum," sagði Yamal.
„Ég veit að ég get gert betur heldur en ég hef verið að gera. Ég geri miklar kröfur til mín og hef mikinn metnað. Ég er aldrei sáttur, ég vil alltaf gera betur hvort sem það er með Spáni eða Barcelona."
Courtois ver mark Belgíu gegn Spáni en Yamal þekkir hann vel frá El Clásico leikjunum gegn Real Madrid.
„Thibaut Courtois er einn af bestu markvörðum í heimi, hann mun gera mér lífið leitt en ég ætla samt að reyna að vinna. Markmiðið mitt er ekki að skora mörk, markmiðið mitt er að vinna leiki. Ég vil verða betri heldur en ég er, ég er ekki sáttur með gæðastigið sem ég er á. Ég vil skipta sköpum oftar og ég lít mikið upp til Leo Messi. Hann hefur verið ótrúlegur á þessu móti, við vissum öll að hann yrði góður en enginn bjóst við að hann yrði svona góður. Ég er svo ánægður fyrir hans hönd."
Yamal svaraði að lokum spurningum um Argentínumanninn Julián Alvarez, sem er samherji Messi í landsliðinu og lykilmaður í liði Atlético Madrid. Hann hefur verið orðaður við Barcelona en ólíklegt er að Börsungar geti leyft sér að kaupa hann frá Madríd.
„Við bíðum eftir honum með opnum örmum. Julián er sú tegund af leikmanni sem allir vilja hafa sem samherja. Hann er gjörsamlega fullkominn fyrir leikstílinn okkar. Hann er toppleikmaður, við vitum það allir. Vonandi kemur hann til okkar."