Alfreð og Sævar búnir að framlengja? - „Eiginlega fullkomið fyrir mig að vera áfram í Lyngby"

Alfreð Finnbogason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sævar Atli Magnússon.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Alfreð Finnbogason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Danski miðillinn BT greinir frá því í dag að íslensku landsliðsmennirnir Alfreð Finnbogason og Sævar Atli Magnússon séu báðir búnir að skrifa undir nýja samninga við Lyngby.
Alfreð sagði í viðtali við Fótbolta.net í gær að hans fyrsti kostur væri að vera áfram hjá Lyngby og sú staðreynd að liðið hélt sér uppi í efstu deild ætti stóran þátt í því. Samningur hans rennur út í lok mánaðar.

Sævar Atli á eitt ár eftir af samningi sínum við Lyngby og ræddi við Fótbolta.net í síðustu viku um sína framtíð. Hvernig líður þér með það að eiga eitt ár eftir af samningi?
„Ég veit að Lyngby eru ekki hrifnir af því (vilja hafa menn á lengri samningum) og við munum pottþétt fara í samningsviðræður sem fyrst. Lyngby er 'selling club' og mun aldrei breytast að því leyti. Ég er mjög hrifinn af því að vera áfram, en í þessum fótboltaheimi veit maður ekki hver er að fylgjast með manni. Ef það kemur gott tilboð og Lyngby vill selja mig þá þarf ég að skoða það."
„Mér líður ekki óþægilega, en ég veit núna betur - eftir að við héldum okkur uppi - að það er eiginlega fullkomið fyrir mig að vera áfram í Lyngby. Ef við höldum góðum liði þá getum við gert góða hluti á næsta tímabili. Superliga er frábær deild; mikil gæði, fótboltinn er frekar taktískur; ekki mikið af opnum leikjum. Deildin hentar mér vel að því leyti, ég er ekki mikið í því að sóla þrjá og skora, meira í því að hlaupa og berjast og Lyngby sem klúbbur hentar mér."
Hann hefur verið orðaður við önnur félög í Danmörku.
„Ég myndi klárlega skoða það ef það kæmi tilboð frá toppliðunum í Superliga. En ég þyrfti að finna leikstíl sem hentar mínum leik, finnst ég samt geta aðlagast frekar mörgu og get leyst margar stöður. Ég myndi klárlega skoða það, en ég hef oft sagt að mér líður ofboðslega vel í Lyngby."
„Ég myndi líka skoða það ef það kæmi tilboð frá öðru landi, er búinn að þroskast mikið með því að búa einn í nýju landi. Ég myndi telja mig tilbúinn í að flytja frá Danmörku, en mér líður vel í Lyngby og við munum sjá hvað gerist. Ég ætla reyna pæla sem minnst í þessu núna á Íslandi en ég get lofað þér því að það verður mjög erfitt," sagði Sævar. Viðtalið við hann má nálgast í spilaranum neðst.