Fotbolti.net
14.06.23 - 10:25
Elvar Geir Magnússon

Bellingham gerði sex ára samning við Real Madrid (Staðfest)

Bellingham er orðinn leikmaður Real Madrid.

Bellingham er orðinn leikmaður Real Madrid.

Canon

Mynd: Getty Images

Real Madrid hefur gengið frá kaupum á Jude Bellingham frá Borussia Dortmund en enski landsliðsmiðjumaðurinn hefur skrifað undir sex ára samning við spænska stórliðið.
Á morgun verður haldin athöfn þar sem Bellingham verður kynntur fyrir stuðningsmönnum og ræðir svo við fjölmiðla að því loknu.

Real Madrid borgar 88,5 milljónir punda fyrir þennan nítján ára gamla leikmann en verðið gæti hækkað eftir ákveðnum ákvæðum. Mögulegt er að verðið hækki alls upp í 115 milljónir punda.

Bellingham hóf sinn feril hjá Birmingham City en verðmiði hans hefur hækkað eftir frábæra frammistöðu með Dortmund og enska landsliðinu.

Hann var afskaplega eftirsóttur og hafði úr mörgu að velja en ákvað að fara til Real Madrid.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.