Fotbolti.net
14.06.25 - 11:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Kossounou alfarið til liðs við Atalanta (Staðfest)

Kossounou alfarið til liðs við Atalanta (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Odilon Kossounou er genginn alfarið til liðs við Atalanta en hann var á láni hjá félaginu á síðustu leiktíð.
Kossounou er 24 ára gamall varnarmaður en hann gekk til liðs við Atalanta á láni frá Leverkusen síðasta sumar.

Hann spilaði 23 í öllum keppnum, þar af 18 í deildinni þar sem Atalanta hafnaði í 3. sæti og tryggði sér þar með sæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð.

Kaupmöguleiki var í lánssamningnum sem Atalanta nýtti sér og félagið borgar 20 milljónir evra fyrir hann.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.