Fotbolti.net
14.06.25 - 12:41
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Óli Valur tekur fram skóna og spilar með Kára (Staðfest)

Í leik með ÍA 2018.

Í leik með ÍA 2018.

Canon

Mynd: Haukur Gunnarsson

Ólafur Valur Valdimarsson er 34 ára Skagamaður sem hefur ekki spilað síðan 2022 þegar hann lék tvo leiki með Kára.

Han á að baki 148 deildarleiki með ÍA á sínum ferli, og alls rúmlega 200 leiki fyrir félagið. Í aðdraganda leiks Kára gegn KFA í dag tilkynntu Skagamenn að Óli Valur hefði rifið fram skóna og ætli sér að spila með Kára í sumar.

Hann reyndar nær ekki leiknum í dag en sá leikur hefst 14:00 og fer fram í Akraneshöllinni.

Kári er í 11. sæti 2. deildar með sex stig eftir sjö leiki. Tvö stig og þrjú sæti eru upp í KFA sem er án sigurs í fimm leikjum.
Tilkynning Kára
Knattspyrnufélagið Kári tilkynnir með stolti að Óli Valur sé kominn aftur í takkaskóna og hafi samþykkt að klára tímabilið með liðinu í 2. deild karla.

Athygli er vakin á því að Óli Valur verður ekki leikfær fyrir leikinn gegn KFA í dag, eftir að hafa meiðst á öxl við að klappa sjálfum sér á bakið eftir einstaklega góða æfingu í gærkvöldi.

Fyrir leik Kára & KFA mun leikmaðurinn veita viðstöddum fjölmiðlum stutt viðtal þar sem hann ræðir væntingar sínar og markmið með endurkomunni.

Stuðningsmenn Kára eru hvattir til að fjölmenna og fagna endurkomu þessa reynslumikla leikmanns – og muna að taka myndir, því enginn veit hvenær við sjáum hann næst nálægt vellinum.

Velkominn aftur í Káratreyjuna!
Óli Valur tekur fram skóna og spilar með Kára (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.