HM: Sprækir Japanar jöfnuðu í tvígang

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Holland 2 - 2 Japan
1-0 Virgil van Dijk ('51 )
1-1 Keito Nakamura ('57 )
2-1 Crysencio Summerville ('64 )
2-2 Daichi Kamada ('89 )
1-0 Virgil van Dijk ('51 )
1-1 Keito Nakamura ('57 )
2-1 Crysencio Summerville ('64 )
2-2 Daichi Kamada ('89 )
Holland og Japan áttust við í eftirvæntum slag í F-riðli heimsmeistaramótsins í kvöld og var staðan markalaus eftir tíðindalítinn fyrri hálfleik.
Hollendingar sköpuðu meiri hættu en hvorugu liði tókst að skora fyrr en í síðari hálfleiknum. Reynsluboltinn Virgil van Dijk gerði fyrsta mark leiksins með frábærum skalla eftir fyrirgjöf frá Ryan Gravenberch á 51. mínútu, en Japanarnir svöruðu.
Keito Nakamura jafnaði metin sex mínútum síðar þegar marktilraun hans frá vítateigslínunni fór af Jan Paul van Hecke og endaði í netinu, framhjá Bart Verbruggen sem skutlaði sér í boltann en kom engum vörnum við.
Sjö mínútum eftir það var röðin komin að Crysencio Summerville, kantmanni West Ham United, sem gerði vel að klára með marki úr erfiðu skotfæri eftir laglegan undirbúning frá Gravenberch.
Hollendingar virtust vera að sigla sigrinum í höfn allt þar til á lokamínútunum þegar Japönum tókst að jafna með skalla eftir hornspyrnu, þrátt fyrir talsverðan hæðarmun á liðunum. Koki Ogawa var þar á ferðinni þegar hann skallaði boltann í hausinn á Daichi Kamada og þaðan skaust boltinn í netið.
Kamada fékk markið skráð á sig og tókst hvorugu liði að skora sigurmark í sex mínútna uppbótartíma. Lokatölur 2-2.
Þjóðirnar eru í áhugaverðum riðli á HM ásamt Svíþjóð og Túnis.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!