14.07.07 - 12:50
Hörður Snævar Jónsson
AC Milan lánar Oliveira til Zaragoza (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Ricardo Oliveira framherji AC Milan hefur verið lánaður til Real Zaragoza. Oliveira mun vera á láni alla næstu leiktíð á Spáni en frá þessu er greint á heimasíðu AC Milan.
Oliveira kom til Milan í fyrra frá Real Betis fyrir 17 milljónir evra. Hann náði engan vegin að standa undir væntingum hjá félaginu og mun nú fá tækifæri á Spáni til að sanna sig.
Hann á góðar minningar þaðan því tímabilið 2004/2005 var hann markahæsti leikmaður LA Liga og átti að verða arftaki Andriy Shevchenko hjá Milan en skoraði aðeins þrjú mörk í 26 leikjum í Seriu A.
Hann á góðar minningar þaðan því tímabilið 2004/2005 var hann markahæsti leikmaður LA Liga og átti að verða arftaki Andriy Shevchenko hjá Milan en skoraði aðeins þrjú mörk í 26 leikjum í Seriu A.
Heimild: Reuters
