Fotbolti.net
14.07.07 - 13:45
Hafliði Breiðfjörð

Fyrirliði U21 árs landsliðs Sviss til Man City (Staðfest)

Sven Göran Eriksson er búinn að kaupa tvo nýja leikmenn.

Sven Göran Eriksson er búinn að kaupa tvo nýja leikmenn.

Canon

Mynd: Getty Images

Manchester City hafa gengið frá kaupum á Gelson Fernandes fyrirliða U21 árs landsliðs Sviss en leikmaðurinn er keyptur frá FC Sion og kaupverðið hefur ekki verið gefið upp ennþá.
Fernandes sem er tvítugur er önnur kaup Sven Göran Eriksson til félagsins síðan hann tók við knattspyrnustjórastarfinu nú nýlega.

Hann er miðjumaður sem hafði leikið 32 leiki með Sion í svissnesku ofurdeildinni en Newcastle og Bolton voru einnig talin á höttunum eftir honum.

Fenandes og Rolando Bianchi sem kom til Man City í vikunni munu hitta nýja liðsfélaga sína í keppnisferð í Svíþjóð.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.