Fotbolti.net
14.07.07 - 19:57
Arnar Geir Halldórsson

Ayala til Zaragoza (Staðfest)

Ayala til Zaragoza (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Real Zaragoza hafa náð samningum við Roberto Ayala sem hugðist ganga til liðs við Villarreal.
Ayala hafði skrifað undir samning við Villarreal eftir að samningur hans við Valencia rann út en nú segjast Zaragoza hafa náð samkomulagi um kaup á kappanum.

Kappinn er þessa stundina að undirbúa sig fyrir úrslitaleik Copa America sem fram fer annaðkvöld en þrátt fyrir að vera orðinn 34 ára er Ayala enn lykilmaður í vörn Argentínumanna. Hann á að baki 114 landsleiki og marga þeirra sem fyrirliði.

Real Zaragoza enduðu í 6.sæti La Liga á síðasta tímabili og tryggðu sér þar með keppnisrétt í Uefa Cup.

Fyrr í dag gekk Ricardo Oliveira til liðsins á láni frá AC Milan.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.