Fotbolti.net
14.07.22 - 14:24
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Hannes mættur til Englands: Atvik sem fékk ekki mikla athygli

Auglýsing
Hannes með börnum sínum.

Hannes með börnum sínum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
Fyrrum landsliðsmarkvörðurinn Hannes Þór Halldórsson er mættur til Englands þar sem íslenska kvennalandsliðið tekur þátt á EM.

Hann verður í stúkunni þegar Ísland spilar við Ítalíu á EM á eftir.
„Stemningin er ótrúlega góð. Það er bros á öllum andlitum. Við vorum bara að mæta og erum að taka þetta inn núna. Þetta byrjar ótrúlega vel," sagði Hannes.

„Mér líst vel á þennan leik á móti Ítalíu. Það er örugglega sjálfstraust í liðinu eftir síðasta leik. Þetta verður erfitt en ég held að þetta gæti dottið okkar megin."

Hannes var ánægður með kollega sinn, Söndru Sigurðardóttur, í íslenska markinu í fyrsta leiknum.

„Hún átti mjög góðan leik. Ég var hrifinn af hennar spilamennsku. Hún gerði svakalega vel í eitt skiptið þegar hún keyrði í úthlaup og át það. Það er atvik sem fékk ekki mikla athygli. Hún stóð sig mjög vel," segir Hannes.

Hægt er að sjá allt viðtalið hér að ofan, en Hannes spáir 2-1 sigri Íslands.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.