Fotbolti.net
14.07.22 - 21:35
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Skrifar frá: Manchester

Sara Björk: Miðjan er nægilega góð ef það er spurningin

Auglýsing
Sara í leiknum.

Sara í leiknum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
„Maður er svekktur, maður hefði viljað fá þrjú stig í þessum leik,“ sagði fyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir eftir 1-1 jafntefli gegn Ítalíu í öðrum leik Íslands á EM.
Við erum með tvö stig eftir tvo leiki. „Það jákvæða er að við erum ekki búnar að tapa á mótinu, við erum búnar að skora... svo verðum við bara að klára það sem er eftir, klára þessa Frakka.“

„Ég er sátt með vinnuframlagið. Það er alltaf eitthvað sem er hægt að bæta. Maður gefur allt í þessum leikjum og stundum er það nóg, stundum ekki.“

Það hefur skapast umræða um að þessi miðja sem hefur byrjað fyrstu tvo leikina sé ekki að tengja nægilega vel saman, leikmennirnir þrír séu mjög líkir og það sé ekki að henta nægilega vel.

„Er mikið búið að tala um það hvernig miðjan sé að tengja saman? Ég hef ekki lesið það, en mér finnst miðjan sem er að byrja alveg nægilega góð til að byrja ef það er spurningin.“

Ísland þarf líklega sigur gegn Frakklandi í lokaleiknum til að fara áfram. „Þetta verður erfiður leikur. Ég veit ekki hvort að hausinn á þeim verður kominn lengra, við vonum það. Þetta verður erfiðasti leikurinn í riðlinum, en það getur verið að við eigum okkar besta dag. Við þurfum að hafa trú.“
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.