Fotbolti.net
14.07.26 - 20:59
Ívan Guðjón Baldursson

HM: Spánn í úrslit eftir þægilegan sigur

HM: Spánn í úrslit eftir þægilegan sigur
Canon

Mynd: EPA

Frakkland 0 - 2 Spánn
0-1 Mikel Oyarzabal ('22, víti)
0-2 Pedro Porro ('58)
Evrópumeistararnir frá Spáni eru búnir að tryggja sér sæti í úrslitaleik heimsmeistaramótsins eftir sigur gegn Frakklandi í kvöld.

Það var lítið um færi í leik sem einkenndist af mikilli baráttu og hörku og voru það Spánverjar sem náðu forystunni eftir vítaspyrnu í fyrri hálfleik. Lucas Digne gerðist sekur um herfileg mistök og braut á Lamine Yamal röngu megin við vítateigslínuna. Mikel Oyarzabal skoraði örugglega af vítapunktinum.

Sjáðu markið: Digne gripinn í landhelgi og Spánn leiðir
TENGT EFNI

Sjáðu markið: Digne gripinn í landhelgi og Spánn leiðir



Frakkar sköpuðu lítið sem ekkert í fyrri hálfleik og litu Spánverjar þægilega út. Þeir héldu boltanum minna en þeir gera vanalega en Frökkunum tókst ekki að skapa hættu þrátt fyrir að halda vel í boltann.

Spánverjar leiddu í leikhlé og tvöfölduðu forystuna þegar bakvörðurinn Pedro Porro slapp í gegn eftir laglegt þríhyrningsspil við Dani Olmo á 58. mínútu. Porro skoraði af stuttu færi og reyndu Frakkarnir að taka stjórn á leiknum, en tókst ekki.

Sjáðu markið: Porro tvöfaldaði forystuna
TENGT EFNI

Sjáðu markið: Porro tvöfaldaði forystuna



Frakkar héldu boltanum vel en sköpuðu litla hættu. Spánverjar vörðust gríðarlega vel og gáfu ekki mörg færi á sér þrátt f yrir að vera með háa varnarlínu. Þeir veigruðu sér ekki við að sækja þrátt fyrir forystuna og var Lamine Yamal axlarbreidd frá því að setja þriðja markið en var flaggaður rangstæður.

Frakkar fengu hálffæri á lokakaflanum en gerðu sig annars ekki líklega til að minnka muninn fyrr en seint í uppbótartíma þegar Ousmane Dembélé átti tvö skot á rammann og Kylian Mbappé setti boltann yfir í tvígang.

Spánn mætir annað hvort Englandi eða Argentínu í úrslitaleiknum.

Lokatölur urðu 2-0 fyrir Spán sem fær tækifæri til að vinna heimsmeistaramótið í annað sinn í sögunni, eftir að hafa hampað titlinum 2010.

Þetta er þriðji undanúrslitaleikurinn sem liðin mætast í á síðustu tveimur árum og alltaf hafa Spánverjar haft betur.
HM: Spánn í úrslit eftir þægilegan sigur
Canon

Mynd: EPA

HM: Spánn í úrslit eftir þægilegan sigur
Canon

Mynd: EPA

HM: Spánn í úrslit eftir þægilegan sigur
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.