Fotbolti.net
14.07.26 - 22:40
Ívan Guðjón Baldursson

Spánn og Oyarzabal jöfnuðu met

Spánn og Oyarzabal jöfnuðu met
Canon

Mynd: EPA

Spænska landsliðið tryggði sér þátttökurétt í úrslitaleik heimsmeistaramótsins með sigri gegn Frakklandi í undanúrslitaleik fyrr í kvöld.
Þetta var 37 leikurinn í röð sem liðið spilar án þess að tapa og hefur því tekist að jafna heimsmet Ítalíu, sem fór einnig í gegnum 37 leiki án þess að tapa frá október 2018 til október 2021. Á þeim tíma urðu Ítalír Evrópumeistarar og slógu Spán úr leik eftir vítaspyrnukeppni í undanúrslitunum.

Það voru svo Spánverjar sem enduðu taplausa hrinu Ítala þegar liðin mættust í undanúrslitum Þjóðadeildarinnar 2021.

Spánn getur því bætt met Ítalíu í úrslitaleik heimsmeistaramótsins sem fer fram á sunnudaginn. Andstæðingarnir verða annað hvort ríkjandi meistarar Argentínu, eða England sem mætti Spáni í úrslitaleik Evrópumótsins fyrir tveimur árum.

Mikel Oyarzabal skoraði fyrra markið í 2-0 sigri Spánverja gegn Frökkum í undanúrslitum. Það var hans fimmta mark á mótinu og er hann þar með búinn að jafna markamet spænska landsliðsins á lokamótinu.

Emilio Butragueno og David Villa eru einu Spánverjarnir sem hefur tekist að skora fimm mörk á stöku heimsmeistaramóti.

Villa skoraði fimm mörk í sjö leikjum í Suður-Afríku 2010, en Butragueno setti fimm mörk í fimm leikjum á HM 1986 í Mexíkó.

HM: Spánn í úrslit eftir þægilegan sigur
TENGT EFNI

HM: Spánn í úrslit eftir þægilegan sigur

Spánn og Oyarzabal jöfnuðu met
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.