Yamal vill sigur í afmælisgjöf – „Þið búist væntanlega ekki við neinu“

Lamine Yamal

Mynd: EPA

Lamine Yamal

Mynd: EPA
Lamine Yamal, stjarna Spánverja, segist ekki finna fyrir neinu stressi fyrir undanúrslitaleikinn gegn Frökkum á heimsmeistaramótinu á morgun.
Yamal hefur aðeins skorað eitt mark á mótinu, en hann glímdi við meiðsli í aðdraganda þess og er ekki enn orðinn hundrað prósent.
Vængmaðurinn fagnar 19 ára afmæli sínu í dag og segist aðeins óska sér eins í afmælisgjöf.
„Að vinna Frakkland. Keyrum á þá!“ sagði Yamal á blaðamannafundi.
Hann segir enga hræðslu ríkja innan spænska liðsins þótt Frakkar séu taldir sigurstranglegir.
„Það er enginn ótti í okkur. Við erum Evrópumeistarar og óttumst ekkert lið.“
Yamal segist ekki velta markaskorun mikið fyrir sér og vill fyrst og fremst leggja sitt af mörkum. Hann viðurkennir þó að það væri sérstakt að skora í jafn stórum leik.
„Ég spái lítið í mörk, en það er alltaf sérstakt að skora í svona leikjum. Ég tek þessari áskorun og þess vegna er ég hér. Þetta er stærsti og mikilvægasti leikur ferils míns, það er enginn vafi á því.“
Það er margt erfiðara í lífinu en einn fótboltaleikur. Ég þarf bara að halda ró minni því ég veit hvað ég get og finn ekki fyrir neinu stressi.“
Yamal sagðist auk þess geta nýtt sér umræðuna um að hann hafi ekki náð sér á strik á mótinu.
„Það eru allir að segja að ég sé ekki upp á mitt besta, þannig að þið eruð væntanlega ekki að búast við miklu frá mér á morgun,“ sagði Yamal og glotti.