Fotbolti.net
14.09.05 - 14:30
Magnús Már Einarsson

Fadiga og Whittingham til Derby á láni (Staðfest)

Skagamenn léku æfingaleik við Derby fyrr í sumar og unnu 2-1.

Skagamenn léku æfingaleik við Derby fyrr í sumar og unnu 2-1.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson

Enska 1.deildarliðið Derby County hefur fengið tvo miðjumenn að láni úr ensku úrvalsdeildinni. Liðið hefur fengið Khalilou Fadica að láni frá Bolton en þessi þrítugi Senegali er aftarlega í goggunarröðinni hjá Bolton.
Derby hefur einnig fengið Peter Whittingham að láni frá Aston Villa. Þessi U-21 árs landsliðsmaður hjá Englendingum kemur einnig á láni í mánuð en hann var áður hjá Burnley í láni.

Báðir leikmennirnir gætu leikið sinn fyrsta leik fyrir Derby í kvöld þegar að liðið mætir Coventry.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.