Fotbolti.net
14.09.17 - 19:18
Magnús Már Einarsson

Stefán Teitur: Þetta er ekki búið fyrr en það er búið

Auglýsing
Stefán Teitur fagnar marki sínu í kvöld.

Stefán Teitur fagnar marki sínu í kvöld.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Við gátum unnið leikinn og þeir gátu unnið leikinn. Þetta var 50/50,\" sagði Stefán Teitur Þórðarson, sóknarmaður ÍA, eftir 2-2 jafntefli gegn Fjölni í fallbaráttuslag í kvöld.

Skagamenn fengu tvö klaufaleg mörk á sig í leiknum í kvöld. „Þetta var svolítið einbeitingarleysi í vörninni. Við hefðum auðveldlega getað bjargað þessu.\"
Skagamenn eru nú með 14 stig á botni deildarinnar, sjö stigum frá öruggu sæti þegar þrjár umferðir eru eftir.

„Þetta er ekki búið fyrr en það er búið. Við höldum áfram í vonina,\" sagði Stefán.

Stefán skoraði í öðrum leiknum í röð í kvöld. „Ég þakka Jóni Þór (Haukssyni, þjálfara) mikið fyrir traustið sem hann er að gefa mér. Hann talar ekki bara um það heldur sýnir mér traustið með því að leyfa mér að byrja,\" sagði Stefán.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.