Fotbolti.net
14.09.19 - 20:29
Kristófer Jónsson

Logi Tómasson: Áttum þetta svo sannarlega skilið

Auglýsing
Logi býst ekki við að gera lag um titilinn.

Logi býst ekki við að gera lag um titilinn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn
Logi Tómasson, leikmaður Víkings, var í skýjunum eftir að lið hans varð Mjólkurbikarsmeistari í dag eftir 1-0 sigur gegn FH.

<i>„Tilfinningin er betri en ég hélt. Það er ekki hægt að lýsa þessu. Við vorum með tökin á þessum leik en þurftum að liggja aðeins tilbaka síðustu tuttugu. En heilt yfir fannst mér við betri og áttum þetta skilið."</i> sagði Logi eftir leikinn í dag.
Logi byrjaði mótið af krafti en hefur minna fengið að spila undanfarnar vikur. Hann segir þetta vera gríðarlega skemmtilegt fyrir sig að fá að spila 90 mínútur í þessum leik.

„Þetta er sérstaklega gaman fyrir mig þar sem að ég hef verið mikið á bekknum undanfarið. Að fá að byrja í dag og halda hreinu með strákunum er bara geðveikt."

Logi er ekki bara leikmaður Víkings heldur er hann einnig einn vinsælasti tónlistarmaður landsins þessa daganna þekktur sem Luigi. Fréttamaður spurði hann hvort að það væri von á lagi um bikarmeistaratitilinn og þessu svaraði Logi:

„Nei ég býst nú ekki við því."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.