Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 14. september 2020 19:30
Aksentije Milisic
Ísak fær mikið hrós frá stuðningsmönnum Norrköping - Juventus að skoða hann?
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ísak Bergmann Jóhannesson, leikmaður Norrköping í Svíþjóð, hefur heldur betur verið að gera gott mót síðan hann gekk til liðs við liðið. Hann var seldur til Norrköping frá ÍA í lok árs 2018.

Ísak skoraði fyrra mark liðsins í kvöld í góðum 2-0 sigri á Kalmar. Í kjölfarið hefur hrósunum rignt yfir drenginn og hrósa stuðningsmenn Norrköping honum í hástert.

Þar eru menn að tala um að njósnari Juventus hafi verið að fylgjast með Ísaki í kvöld og séð hann skora. Risa stórar fréttir ef satt er.

Þá eru menn að velta fyrir sér hvenær hann yfirgefur liðið og á hve mikinn pening.

Þessar umræður má sjá hér fyrir neðan og verður fróðlegt að fylgjast með Ísaki og hans spilamennsku á komandi tímum.






Athugasemdir
banner
banner
banner