Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   þri 14. september 2021 20:32
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Baulað á Sergio Roberto og hann fær á baukinn á samfélagsmiðlum
Sergi Roberto.
Sergi Roberto.
Mynd: EPA
Barcelona er að tapa gegn Bayern München í leik sem er núna í gangi í fyrstu umferð riðlakeppni Meistaradeildarinnar.

Börsungar byrjuðu ágætlega en svo tók Bayern öll völd á vellinum. Thomas Müller skoraði fyrsta mark leiksins áður en flautað var til hálfleiks.

Robert Lewandowski var svo að bæta við marki og er staðan 2-0 í augnablikinu.

Það er langt síðan Barcelona hefur verið með eins slakt lið. Það er náttúrulega enginn Lionel Messi lengur í herbúðum félagsins. Það er vegna þess hversu illa félagið hefur verið rekið, en Katalóníustórveldið er í miklum fjárhagsvandræðum.

Það er ekki sérstök stemning á Nývangi, en það er baulað sérstaklega þegar einn ákveðinn leikmaður fór af velli; þegar Sergi Roberto fór af velli. Roberto átti ekki góðan leik fyrir Barcelona í hægri bakverðinum og var baulað þegar hann fór af velli.

Hægt er að sjá brot af umræðunni um hans frammistöðu á Twitter hér að neðan.









Athugasemdir
banner
banner
banner