Fotbolti.net
31.10.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ

Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ
Canon

Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl

Sveinbjörn Másson hefur verið sæmdur silfurmerki KSÍ fyrir þrotlaust starf sitt í þágu íslensks fótbolta og þá sérstaklega ungmennafélags Selfoss.
Sveinbjörn hefur alla tíð verið virkur þátttakandi í fótboltastarfinu á Selfossi. Fyrst sem iðkandi og síðar sem foreldri, sjálfboðaliði og starfsmaður. Hann starfaði sem framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Selfoss frá 2007 til 2022, eftir að hafa setið í barna- og unglingaráði fyrir það. Hann átti stóran þátt í stofnun Olís mótsins sem er enn starfrækt í dag og hefur verið einn stærsti tekjuliður knattspyrnudeildarinnar síðastliðna áratugi.

Þar að auki hefur Sveinbjörn verið einn af burðarásum flugeldasölu félagsins í yfir 20 ár og starfar hann áfram sem vallarstjóri á Selfossvelli líkt og hann hefur gert í nærri 20 ár.

Sveinbjörn hefur einnig gegnt trúnaðarstörfum fyrir KSÍ í gegnum árin, þá helst með störfum í mótanefnd, og hefur setið í stjórn Íslensks toppfótbolta, hagsmunasamtaka félaga sem reka lið í tveimur efstu deildum karla og kvenna.

Á framkvæmdastjóratíð Sveinbjarnar urðu mikil framfaraskref á Selfossi. Bæði karla- og kvennalið bæjarins léku í fyrsta skipti í sögunni í efstu deild og vann kvennaliðið Mjólkurbikarinn.

Heimild: KSÍ

Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.