Fotbolti.net
31.10.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Alþjóðlegt fótboltamót eldri flokka í Egilshöll

Alþjóðlegt fótboltamót eldri flokka í Egilshöll
Canon

Mynd: KSÍ

Alþjóðlegt fótboltamót eldri flokka fer fram í 19. skipti laugardaginn 7. nóvember og verður keppt í Egilshöllinni.
Mótið hefst klukkan 9 að morgni og lýkur því klukkan 16. Glæsilegt lokahóf verður síðan í Fylkishöll um kvöldið með sælkeramat, verðlaunaafhendingu og skemmtun fram eftir nóttu.

Um 50 fótboltalið með yfir 400 leikmenn frá yfir 10 löndum eru nú þegar skráð til þátttöku í mótinu.

Mótið er eins og undanfarin ár haldið af Fylki og Þrótti R. með stuðningi Reykjavíkurborgar og KSÍ.

Þetta er eitt af þremur eldri flokka mótum sem Þróttur stendur fyrir, ásamt því að halda Lava Cup í Skotlandi í Skotlandi á vorin og Rey Cup Senior í Laugardal um hásumar.

Í Egilshöllinni verður leikið á fjórðungi af fótboltavelli og er keppt í fimm manna bolta, með fimm útispilandi leikmenn og einn markmann hverju sinni og frjálsar skiptingar.

Þá eru tæklingar bannaðar og er notast við innspörk í stað innkasta.

Keppt er í fjórum flokkum karla (30+, 40+, 50+ og 60+) og þremur flokkum kvenna (22+, 30+ og 40+).

Enn er opið fyrir skráningar íslenskra liða á Football & Fun og eru áhugasamir leikmenn hvattir til að skrá til leiks bæði lið og leikmenn.

Skráðu þig til leiks

Heimild: KSÍ

Alþjóðlegt fótboltamót eldri flokka í Egilshöll
Canon

Mynd: Football&Fun

Alþjóðlegt fótboltamót eldri flokka í Egilshöll
Canon

Mynd: Aðsend

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.