31.10.26 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía í dag - Slegist um Mílanó

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Tíunda umferð ítalska deildartímabilsins fer af stað í dag og er ómissandi stórleikur í kvöld þegar nágrannaliðin AC Milan og Inter eigast við.
Inter hefur mistekist að leggja Milan að velli í síðustu sjö innbyrðisviðureignum. Liðin hafa tvisvar gert jafntefli og Milan unnið hina fimm nágrannaslagina. Lærlingar Cristian Chivu hafa því harma að hefna í kvöld.
Ítalíumeistarar Inter eru í harðri toppbaráttu við Lazio á fyrri hluta tímabils, sjö stigum fyrir ofan Milan sem situr í 5. sæti.
Fyrr í dag spilar Bologna heimaleik við Monza áður en lærlingar Gian Piero Gasperini í sterku liði Roma heimsækja Udinese. Roma er í þriðja sæti sem stendur og er eitt af þremur liðum sem eru enn taplaus á deildartímabilinu. Rómverjar eru fjórum stigum á eftir toppliðunum og þurfa á sigri að halda.
Leikir dagsins
14:00 Bologna - Monza
17:00 Udinese - Roma
19:45 Milan - Inter