Fotbolti.net
14.10.05 - 17:37
Magnús Már Einarsson

Helgi Sigurðsson til Fram (Staðfest)

Helgi Sigurðsson til Fram (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Helgi Sigurðsson hefur skrifað undir tveggja ára samning hjá Fram en þetta staðfesti hann við Fótbolti.net í dag. Helgi mun koma hingað til lands um áramótin en þá mun hann yfirgefa danska liðið AGF.
Helgi sem lék á sínum tíma með Víkingi R. hefur leikið erlendis frá árinu 1994 að árinu 1997 undanskildu er hann lék einmitt með Fram fyrri hluta sumarsins.

Spennandi verður að sjá Helga hér á landi næsta sumar og þá í 1.deildinni þar sem Fram féll í haust. Óneitanlega væri skemmtilegt að sjá hann með Ríkharði Daðasyni í framlínunni en sá síðarnefndi gæti þó þurft að leggja skóna á hilluna vegna meiðsla.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.