Fotbolti.net
14.10.07 - 16:30
Magnús Már Einarsson

Þorvaldur Örlygsson tekinn við Fram (Staðfest)

Þorvaldur Örlygsson tekinn við Fram (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þorvaldur Örlygsson hefur verið ráðinn þjálfari Fram og hefur hann gert tveggja ára samning við félagið.
Hann tekur við starfinu af Ólafi Þórðarsyni sem hætti með liðið í byrjun mánaðarins.

,,Þorvaldur býr yfir mikilli reynslu eftir farsælan ferill sem leikmaður erlendis og hann hefur náð góðum árangri sem þjálfari og það er okkur mikil ánægja að hann skuli hafa tekið að sér starfið. Viðræður gegnu hratt og vel fyrir sig sem lýsir vel áhuga beggja aðila fyrir samstarfi," segir í yfirlýsingu frá Fram.

Þorvaldur sem er 41 árs lék með Fram árið 1991 en hann var einnig atvinnumaður í Englandi í mörg ár þar sem hann lék með Nottingham Forrest, Stoke City og Oldham.

Hann hefur þjálfað Fjarðabyggð með góðum árangri undanfarin tvö ár en liðið sigraði aðra deildina í fyrra og endaði í fimmta sæti í fyrstu deildinni í sumar.

Þorvaldur hafði áður þjálfað KA frá 2000-2005 og þar af var liðið í efstu deild 2002-2004 en hann lék með Akureyrarliðinu við góðan orðstír á sínum tíma.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.