14.10.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Segir Madueke hafa öskrað á sig - „Það var ansi ljúft“

Jurrien Timber

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Jurrien Timber

Mynd: EPA
Hollenski bakvörðurinn Jurrien Timber skoraði glæsilegt og mikilvægt mark þegar Arsenal vann Lille, 3-0, í Meistaradeildinni í gær.

TENGT EFNI
Arteta ánægður með viðbrögðin - „Það mun bara hjálpa okkur“
Arsenal átti í erfiðleikum með að brjóta vörn Lille á bak aftur og þrátt fyrir yfirburði vantaði herslumuninn til að koma boltanum í netið.
Það var svo Timber sem braut ísinn með stórglæsilegu marki í síðari hálfleik áður en Arsenal bætti við tveimur mörkum og tryggði sér öruggan sigur.
Timber fékk sendingu frá Noni Madueke, tók boltann laglega með hælnum og kom honum fram fyrir sig áður en hann lyfti honum yfir markvörð Lille.
„Ég átti nokkur góð augnablik í fyrri hálfleiknum en fékk fleiri færi í þeim síðari. Fyrsta snertingin var góð og það var hálfur sigurinn. Svo var Noni að öskra á mig að skjóta þannig að ég ákvað bara að láta vaða. Boltinn fór í netið og það var ansi ljúft.“
„Ég hugsaði ekkert of mikið. Ég sá markið og vissi að ég þyrfti að skjóta. Við þurftum þetta fyrsta mark því við vorum að spila vel en það vantaði bara að koma boltanum í netið. Ég er ánægður að hafa getað lagt mitt af mörkum,“ sagði Timber.
Hann var sérstaklega ánægður með hvernig Arsenal brást við í síðari hálfleik og segir sjálfstraustið mikið í hópnum.
„Við höfum mikla trú á okkur sjálfum og vitum hversu góðir við erum. Við áttum nokkur góð augnablik í fyrri hálfleiknum en nýttum þau ekki. Við vorum samt alltaf með stjórn á leiknum og það vantaði bara fyrsta markið. Við sýndum mikinn karakter í síðari hálfleik og strákarnir sem komu inn á stóðu sig frábærlega. Nú þurfum við bara að halda þessu áfram.“
Arsenal hefur spilað þétt að undanförnu og næsta verkefni er gegn Nottingham Forest á sunnudag. Timber segir mikilvægt að allir í hópnum séu tilbúnir að leggja sitt af mörkum.
„Þetta eru kröfurnar sem eru gerðar til okkar. Við spiluðum fyrir þremur dögum og svo aftur í dag (í gær). Við þurfum á öllum að halda því meiðsli eru hluti af tímabilinu og þá verða aðrir að stíga upp. Við þurfum bara að halda áfram, bæta okkur og vera tilbúnir í annan erfiðan leik á sunnudaginn,“ sagði Hollendingurinn í lok viðtals.