14.11.06 - 18:49
Guðmundur Dagur Ólafsson
Magnus Hedman til Chelsea (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Englandsmeistarar Chelsea hafa gengið frá samningum við sænska markvörðinn Magnus Hedman og gildir samningurinn til loka leiktíðarinnar en hann hefur verið á reynslu hjá Lundúnarliðinu undanfarna daga.
Honum er ætlað að vera þriðji markvörður liðsins en eftir að aðalmarkvörður félagsins, Petr Cech, meiddist alvarlega í leik gegn Reading fyrir nokkru þá hafa Carlo Cudicini og Henrique Hilario staðið í markinu.
"Magnus Hedman hefur náð samkomulagi við Chelsea og mun hann vera varamarkvörður fyrir þá Carlo Cudicini og Hilario og mun vera það áfram þegar Petr Cech snýr aftur eftir meiðslin," sagði í yfirlýsingu frá Chelsea.
Hinn 33 ára gamli Hedman er fyrrverandi markvörður sænska landsliðsins og hefur talsverða reynslu af því að leika Bretlandseyjum eftir að hann stóð í marki Coventry og síðar Celtic.

Heimild: Sky Sports