Fotbolti.net
14.11.07 - 16:44
Hörður Snævar Jónsson

Dusan Ivkovic semur við Selfoss til tveggja ára (Staðfest)

Dusan Ivkovic semur við Selfoss til tveggja ára (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Selfyssingar hafa samið við varnarmanninn sterka Dusan Ivkovic. Ivkovic lék með KS/Leiftri í sumar en bæði þessi lið tryggðu sér sæti í 1. deildinni á næstu leiktíð.
Dusan sem er 27 ára gamall Serbi skrifaði undir tveggja ára samning við Selfyssinga. Dusan hefur leikið gríðarlega vel í vörn KS/Leiftur á síðustu tveimur árum.

Dusan var tvisvar valin leikmaður umferðarinnar á Fótbolta.net í sumar og var í liði ársins sem fyrirliðar og þjálfarar í deildinni völdu.

Hann lék þrettán leiki með KS/Leiftri sumarið 2006 en í ár lék hann 16 leiki með félaginu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.