Fotbolti.net
14.11.18 - 14:27
Elvar Geir Magnússon
Skrifar frá: Brussel

Kári Árna: Hef trú á verkefninu

Auglýsing
Kári Árna: Hef trú á verkefninu
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
„Við höfum verið óvenju heppnir með meiðsli en maður getur ekki verið heppinn endalaust og það er að bíta okkur núna," segir miðvörðurinn reynslumikli Kári Árnason.

Alls eru tíu leikmenn frá vegna meiðsla þegar Ísland mætir Belgíu í Brussel annað kvöld.
„Andinn í hópnum verður bara að vera jákvæður. Leikmenn sem hafa verið mikilvægir fyrir landsliðið detta nánast allir út samtímis. Það er bara kjörið tækifæri fyrir unga leikmenn að sýna sig og sanna."

„Þetta verður náttúrulega mjög erfitt. Í svona leikjum viltu hafa þitt sterkasta lið en við verðum að hafa sjálfstraust og trú á verkefninu. Ég hef það."

Sjáðu viðtalið í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan en það var tekið á landsliðshótelinu í dag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.