Fotbolti.net
14.12.06 - 17:40
Magnús Már Einarsson

Jóhann Ingi í Fjarðabyggð (Staðfest)

Jóhann Ingi í Fjarðabyggð (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Miðjumaðurinn Jóhann Ingi Jóhannsson hefur gengið til liðs við Fjarðabyggð í fyrstu deildinni en hann var í láni hjá félaginu í sumar frá HK.
Jóhann Ingi sem er uppalinn hjá Val Reyðarfirði hefur gert tveggja ára samning við lið Fjarðabyggðar sem sigraði aðra deildina síðastliðið sumar og vann sér þar með sæti í þeirri fyrstu.

Í sumar lék hinn 23 ára gamli Jóhann Ingi alla leikina í annarri deildinni með Fjarðabyggð.

Alls lék hann 38 mótsleiki fyrir HK og skorað í þeim þrjú mörk en árið 2003 var hann valinn knattspyrnumaður félagsins.

Heimild: Heimasíða Fjarðabyggðar

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.