Fotbolti.net
15.01.07 - 21:06

Seck og Shelton til Sheffield Untied (Staðfest)

Luton Shelton í baráttu við Tim Cahill í landsleik Jamaica og Ástrala.

Luton Shelton í baráttu við Tim Cahill í landsleik Jamaica og Ástrala.

Canon

Mynd: Getty Images

Sheffield United hefur borist góður liðsstyrkur fyrir komandi átök í ensku úrvalsdeildinni. Félagið fest í kvöld kaup á tveimur mönnum, Senegalska varnarmanninum Mamadou Seck og Luton Shelton, sem er sóknarmaður frá Jamaica.
Neil Warnock, stjóri liðsins, sér væntanlega fram á harða botnbaráttu og styrkti liðið því umtalsvert en hann lét einnig einn leikmann fara frá félaginu. Það er Neil Shipperley sem hefur ekkert spilað með liðinu á tímabilinu.

Seck er 27 ára gamall og skrifaði hann undir tveggja og hálfs árs samning á Bramall Lane. Hann kemur í frjálsri sölu frá Franska liðinu Le Havre.

Shelton er 21 árs og kostar um tvær milljónir punda. Hann kemur frá Helsingborg í Svíþjóð en á reyndar enn eftir að fá atvinnuleyfi. Hann er landsliðsmaður Jamaica, ásamt Claude Davis varnarmanni United.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.