Liverpool í bílstjórasætinu um Gordon - Salah gæti farið í sumar - Arteta vill styrkja vörnina
banner
   sun 15. febrúar 2026 20:32
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: Akureyri.net 
Ívar Örn var ekki í hóp - Á leið til Breiðabliks
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það lítur allt út fyrir að Ívar Örn Árnason, fyrirliði KA, verði nýr leikmaður Breiðabliks á næstu dögum en hann var ekki með leikmannahópi KA sem lagði Íslandsmeistara Víkings að velli í Lengjubikarnum í dag.

Akureyri.net greinir frá þessum fregnum sem koma ekki á óvart eftir umfjöllun Fótbolta.net frá því fyrir helgi.

Í fréttinni á vefsíðu Akureyrar.net er tekið fram að ekki sé útilokað að gengið verði frá samkomulagi á milli félaganna strax á morgun.

   13.02.2026 15:06
Ívar Örn færist nær Breiðabliki


Ívar Örn er fjölhæfur varnarmaður sem hefur verið mikilvægur hlekkur í liði KA á undanförnum árum.
Athugasemdir
banner
banner