KA 2 - 0 Víkingur R.
1-0 Hallgrímur Mar Steingrímsson ('43)
2-0 Birgir Baldvinsson ('63)
Rautt spjald: Stígur Diljan Þórðarson ('60, Víkingur)
1-0 Hallgrímur Mar Steingrímsson ('43)
2-0 Birgir Baldvinsson ('63)
Rautt spjald: Stígur Diljan Þórðarson ('60, Víkingur)
KA tók á móti Víkingi R. í eina leik dagsins í A-deild Lengjubikarsins og úr varð spennandi viðureign.
Heimamenn tóku forystuna undir lok fyrri hálfleiks þegar Hallgrímur Mar Steingrímsson skoraði laglegt mark beint úr aukaspyrnu.
Íslandsmeisturunum tókst ekki að jafna leikinn, þess í stað innsiglaði KA sigurinn eftir hornspyrnu í síðari hálfleik svo lokatölur urðu 2-0. Birgir Baldvinsson skoraði þá eftir klafs í vítateignum.
Skömmu fyrir annað markið hafði Víkingurinn Stígur Diljan Þórðarson fengið að líta rauða spjaldið fyrir að sparka í Jeppe Pedersen inn á vítateig KA áður en Víkingar tóku hornspyrnu. Jeppe var að dekka Stíg, þeir voru að berjast um stöðu inn á teignum, Stígur varð eitthvað ósáttur við Danann og sveiflaði löppinni. Sigurður Hjörtur Þrastarson dómari var vel staðsettur og lyfti rauðu spjaldi.
Þetta er fyrsti sigur KA í Lengjubikarnum í ár svo liðið er komið með þrjú stig eftir þrjár umferðir.
Þetta er aftur á móti fyrsta tap Víkings sem er með fjögur stig.
Athugasemdir




