Liverpool í bílstjórasætinu um Gordon - Salah gæti farið í sumar - Arteta vill styrkja vörnina
banner
   sun 15. febrúar 2026 12:18
Brynjar Ingi Erluson
Pereira tekur við Forest (Staðfest) - Gerir átján mánaða samning
Vitor Pereira er nýr stjóri Forest
Vitor Pereira er nýr stjóri Forest
Mynd: EPA
Portúgalinn Vitor Pereira er nýr stjóri Nottingham Forest á Englandi, en hann skrifaði undir átján mánaða samning við félagið í dag.

Pereira er áhugamönnum ensku úrvalsdeildarinnar vel kunnugur eftir afrek hans með Wolves á síðustu leiktíð.

Hann tók við liðinu í desember 2024 er liðið var í 19. sæti og náði að bjarga þeim frá falli. Hann kom liðinu á lengstu sigurhrinu allra liða í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð og þá bætti liðið markamet sitt í deild þeirra bestu.

Pereira framlengdi samning sinn í september en var rekinn tveimur mánuðum síðar eftir slaka frammistöðu. Pereira er nú mættur aftur í boðvanginn, en hann hefur verið ráðinn stjóri Nottingham Forest. Hann tekur við keflinu af Sean Dyche sem var rekinn á dögunum.

Portúgalinn er sá fjórði sem stýrir Forest á leiktíðinni. Nuno Espirito Santo var rekinn í september og þá tók Ange Postecoglou við en entist aðeins í mánuð áður en hann var látinn fara.

Dyche var ráðinn í október og náði í nokkur góð úrslit en var látinn fara eftir markalausa jafnteflið gegn Úlfunum á miðvikudag.

Pereira, sem hefur einnig stýrt félögum á borð við Fenerbahce, Porto, Flamengo, Olympiakos og Al Shabab, mun stýra Forest gegn sínum gömlu félögum í Fenerbahce í umspili Evrópudeildarinnar á fimmtudag.


Athugasemdir
banner