Luciano Spalletti, þjálfari Juventus, var brjálaður eftir hálfleiksflautið í 3-2 tapi Juventus gegn Inter í ítölsku deildinni í gærkvöldi. Giorgio Chiellini og Damien Comolli, stjórnendur Juve, voru einnig æfir og hafa meðal annars kallað eftir afsögn Gianluca Rocchi sem sér um að niðurröðun dómara á leiki í Serie A.
Þeir voru gríðarlega reiðir út í dómgæslu Federico La Penna í leiknum þar sem hann rak meðal annars Pierre Kalulu af velli með seinna gula spjaldið sitt undir lok fyrri hálfleiks, en við nánari athugun var það Alessandro Bastoni leikmaður Inter sem fiskaði hann af velli með að dýfa sér til jarðar.
VAR-teymið mátti ekki skerast í leikinn útaf því að um seinna gult spjald var að ræða.
Spalletti, Chiellini og Comolli hópuðust að La Penna í hálfleik og hrópuðu að honum eins og er hægt að sjá í myndbandinu hér fyrir neðan. Þeir voru einnig ósáttir með aðra dóma í leiknum og þá sérstaklega að opnunarmarki leiksins hafi verið leyft að standa þegar þeir töldu hafa verið augljóst brot í aðdragandanum.
Eftir lokaflautið neitaði Spalletti að ræða við fjölmiðla á meðan stjórnendur Juve nýttu tækifærið til að láta ítalska dómarasambandið heyra það.
Juventus Coach Spalletti, and GM Comolli vs the Ref post Derby D'Italia after controversial calls
by
u/The_Nuclear_potato in
soccer
Athugasemdir



