15.03.08 - 06:00
Hörður Snævar Jónsson
Afturelding fær fimm nýja leikmenn (Staðfest)

Albert Högni Arason í leik með ÍR síðastliðið sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Afturelding hefur fengið fimm nýja leikmenn til liðs við sig. Um er að ræða þá Albert Högna Arason, Berg Dan Gunnarsson, Hákon Helga Bjarnason, Högna Haraldsson og Kjartan Sigurðsson.
Albert Högni er reyndastur þessara leikmanna en hann kemur frá ÍR. Albert, sem getur leikið í vörninni og á miðjunni, þekkir vel til hjá Aftureldingu en hann lék með liðinu 2003-2005.
Hann fór síðan í Hauka og þaðan til Grindavíkur áður en hann gekk til liðs við ÍR og lék sjö leiki í annarri deildinni síðastliðið sumar.
Bergur Dan er kantmaður sem kemur frá Gróttu en Högni er kant og bakvörður sem lék síðastliðið sumar með Kára.
Hákon Helgi er varnarmaður sem er uppalinn hjá Fram en hann lék nokkra leiki með ÍH á síðustu leiktíð. Kjartan er síðan ungur framherji sem kemur til Mosfellinga frá Fram en hann er ennþá gjaldgengur í 2.flokki.
Allir þessir leikmenn hafa fengið leikheimild með Aftureldingu og geta því þeir leikið með liðinu þegar það mætir Hvöt í Lengjubikarnum á morgun.