Richarlison var helsta ógn Tottenham gegn Liverpool og tókst að skora jöfnunarmarkið undir lok leiksins
Liverpool 1 - 1 Tottenham
1-0 Dominik Szoboszlai ('18 )
1-1 Richarlison ('90 )
1-0 Dominik Szoboszlai ('18 )
1-1 Richarlison ('90 )
Tottenham náði í sitt fyrsta stig undir stjórn Igor Tudor er liðið gerði 1-1 jafntefli við Englandsmeistara Liverpool á Anfield í dag.
Ekki hægt að segja annað en að Tottenham hafi verðskuldað stigið sem átti mörg góð færi í leiknum.
Heimamenn komust yfir snemma leiks. Liverpool fékk aukaspyrnu um það bil 25 metrum frá marki og var það Ungverjinn Dominik Szoboszlai sem stýrði boltanum yfir vegginn og í netið.
Guglielmo Vicario hefði átt að gera betur í markinu, en hann blakaði boltanum á einhvern undarlegan hátt í eigið net. Fjórða aukaspyrnumark Szoboszlai á tímabilinu og nú einu slíku marki frá því að jafna met David Beckham og Laurent Robert.
Cody Gakpo átti skot sem Vicario varði í stöng ekki svo löngu síðar áður en Tottenham kom sér betur inn í leikinn.
Richarlison var þeirra helsta ógn. Hann átti tvö skallafæri, fyrra eftir fyrirgjöf Mathys Tel sem fór framhjá og þá varði Alisson seinna eftir hornspyrnu.
Brasilíumaðurinn fékk annað ágætis færi í þeim síðari en aftur varði Alisson og þá fór Mohamed Salah illa með gott færi eftir að hafa unnið einvígi við Radu Dragusin sem tókst engan veginn að ráða við háan bolta frá Gakpo.
Á lokamínútum leiksins tókst Richarlison loks að koma boltanum í netið eftir skelfilegan varnarleik Liverpool-manna. Randal Kolo Muani fékk tíma til að dansa með boltann í teignum, áður en hann lagði hann á dauðafrían Richarlison sem lagði boltann neðst í vinstra hornið. Verðskuldað mark Tottenham-manna.
Afar slakt hjá Liverpool í dag en á sama tíma einn besti leikur Tottenham undir stjórn Tudor.
Liverpool missti af tækifæri til að taka fjórða sætið en fer þó upp í fimmta sæti með 49 stig, tveimur stigum frá Aston Villa sem er í fjórða sætinu.
Tottenham er með 30 stig í 16. sæti, einu stigi fyrir ofan fallsæti og útlit fyrir að Tudor fái aðeins lengri tíma til þess að rétta úr kútnum hjá Tottenham.
Athugasemdir

