Spánverjinn Joan Laporta var endurkjörinn forseti Spánarmeistara Barcelona í kvöld en aftur hafði hann betur gegn Victor Font. Þetta kemur fram í tilkynningu Börsunga.
Laporta sagði starfi sínu lausu í síðasta mánuði til þess að taka þátt í kosningunum og hafði stórsigur gegn Font.
Hann fékk 32,934 atkvæði frá meðlimum Barcelona á meðan Font fékk aðeins 14,385 atkvæði. Alls voru 984 meðlimir sem skiluðu auðu og voru 177 atkvæði ógild.
Þetta þýðir að Laporta mun taka aftur við embættinu og verður þar næstu fimm árin.
Hansi Flick verður áfram þjálfari Barcelona en Laporta lýsti yfir því í kosningunum að hann sé rétti maðurinn til að stýra liðinu áfram næstu árin og þá verður Deco áfram yfirmaður íþróttamála.
Laporta tók fyrst við sem forseti Barcelona árið 2003 og var þar til 2010. Hann er maðurinn sem sá um ráðninguna á Pep Guardiola árið 2008 sem hann síðan þrennuna í fyrsta sinn í sögu félagsins árið 2009. Það lið er talið eitt það allra besta í sögu fótboltans.
Hann tók aftur við embættinu árið 2021 eftir að hafa unnið Font í kosningunum. Á síðustu fimm árum hefur Barcelona tvisvar unnið spænsku deildina og þá hefur kvennaliðið þrisvar unnið Meistaradeild Evrópu ásamt því að hafa unnið deildina fjórum sinnum.
Joan Laporta, re-elected president of FC Barcelona.
— FC Barcelona (@FCBarcelona) March 15, 2026
Your president,
our president,
the president of all culers. ?????? pic.twitter.com/G8ndJwjJmW
Athugasemdir


